Jerry Lee Lewis. Hann er eldri en þú, hann hefur drukkið meira en allir sem þú þekkir og hann hefur misst meira en Þýska þjóðin. Hann er líka harðari en þú, hraðari, kröftugari og betri söngvari.. Og já, hann er rúmlega sjötugur. Nýjasta platan hans, Last Man Standing, er ekki góð. Hún er frábær, stórkostleg og allt þar á milli. Að maðurinn, 70 ára gamall, geti rokkað svona skelfir mann. Og það er einmitt það sem hann fær borgað, að skelfa. Platan er það rokkaðasta sem hann hefur gert í 20...