Nei, leikurinn verður að fá að flæða. Ef þetta verður eins og Amerískur Fótbolti þá breytist knattspyrnar í hálfgert vélmenni. Ef þú ert fúll útí eitthvað víti sem átti ekki að eiga sér stað þá skaltu vera í fýlu í nokkra daga og gleyma þessu síðan. Það myndi skemma knattspyrnuna að stjórna henni með smásjá, hún er frjáls, lífleg og skemmtileg. Menn myndu ekki glíma meira, enda fengu þeir ekki að berjast jafn mikið og þeir fá að gera þegar dómari sér um leikinn.