Stálu þeir honum? Bíddu, af hverjum? Átti einhver bikarinn? Ef við ætlum að tala um “réttlætið” í þeim leik þá var því fullnægt þetta kvöld í Barcelona, enda United menn sterkari lengst af í leiknum, en það er ekki spurt að því í lokin. Ef að Bayern áttu sigurinn svona mikið skilið, af hverju unnu þeir þá ekki? Liðið sem skorar fleiri mörk vinnur, einfalt. Að kvarta undan óréttlæti og heppni í fótbolta er fyrir bitra og tapsára menn.