Hérna koma þrjár uppskriftir sem mér finnst mjög góðar og alls ekki erfiðar :) Pestó Kjúklingur: Kjúklingabringur Rautt pestó (ég nota Phillipo Berio) Fetaostur með kryddolíu Vasar skornir í bringurnar og þær ef til vill kryddaðar með uppáhaldskryddinu (ég krydda samt ekki) Fetaostur settur í vasana og bringunum raðað í eldfastmót. Rauðu pestói og fetaosti blandað saman í skál, ég stappa þetta vel með gaffli. Pestó blandan smurð yfir bringurnar, mér finnst gott að nota mikið af henni og sett...