Tónninn finnst mér alveg eyðileggja myndina, myndin ótónuð er miklu betri. Sú mynd er virkilega góð og mér finnst noisið alls ekki skemma neitt á myndinni, noisið er bara svona frekar sjarmerandi og passar vel við myndina.
Ég er hinsvegar bara asskoti hrifinn af þessari mynd það eina sem pirrar mig svolítið er hvernig er skorið inná smá hluti af tré þarna sitthvoru megin á myndinni en annars er þetta mjög flott mynd, moody og góð.
Vó,vó,vó, hugi hefur gert eitthvað hræðilegt við myndina mína, mæli með að hún sé frekar skoðuð hérna: http://flickr.com/photos/atlifreyr/3247833073/sizes/l/ það er mikill munur á skerpu.
Þú getur líka náð HDR mynd úr einni raw mynd. Bara að búa til x margar expousures úr henni í myndvinnslu forriti og svo setja það í gegnum hdr forrit. Svo var ég að læra nýja aðferð um daginn þar sem hægt er að gera HDR ish mynd úr einni mynd jafnvel jpg mynd í lightroom. Þar nær maður meiri dýpt og meiri details í myndina, sem er nokkurnvegin það sem maður er að reyna að ná fram með HDR vinnslu.
Þetta er svosem alveg flott mynd en ég er búinn að sjá svo mikið magn af mótmælamyndum bæði á flickr og LMK að þetta er orðið frekar leiðingjarnt. En annars er þetta hin fínasta mynd.
En svo er það ekki það sem ég er að tala um, er að tala um hvað miðjan á flugeldunum er yfirlýst. Flugeldar eru flottastir teknir á löngum tíma því þá festist allur flugeldurinn á “filmu”. En þá verður auðvitað að minnka ljósopið.
Þetta kemur úr exif data: # Exposure Time (1 / Shutter Speed) = 10/1 second = 10 second # Lens F-Number/F-Stop = 80/10 = F8 # ISO Speed Ratings = 100 Þetta hefði mátt forðast með minna ljósopi.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..