Nú var vetrarhátíð í Hinu Húsinu í gær og margar ungar og ferskar hljómsveitir léku fingrum fram. Ég, því miður, átti strembinn dag og náði einungis síðar helmingnum af þessu ágæta framtaki hins hússins. Já, réttast finnst mér að benda á það að þrátt fyrir að ég hafi farið á betri tónleika, bæði með betri hljóðmanni, hljóðkerfi, ljósum og sal þá finnst mér þetta hið besta mál fyrir þann pening sem ég borgaði (engan, það var ókeypis). Gott að borgin sé að styrkja svona málefni og mætti alveg...