Ég skil ekki alveg hvað er að mér. Einu sinni voru tölvuleikir uppáhalds afþreyingin mín en núna vill ég frekar gera aðra hluti. Ég hef reynt að fá aftur áhuga á þeim með því að kaupa mér Command & Conquer 3, The Elder Scrolls IV: Oblivion, Company of Heroes, Battlefield 2142, Medieval II: Total War, Half-Life 2: Episode One og svo dávnlódaði ég einhverjum en ég bara get ekki kyndað aftur undir logum ástarinnar, á tölvuleikjum. Alltaf fæ ég leið á leikjunum strax. Ég kláraði ekki Company of...