Ég er ekki að reyna að vera leiðinlegur en… Þú ert að farast úr sjálfsvorkunn, hættu að vorkenna þér svona. Rífðu þig upp úr þessu! Þetta er allt spurning um viljastyrk, reyndu plís. Ég hef verið í þessari stöðu, fyrsti kisinn minn var svæfður.
Hvernig þú túlkar það veit ég ekki. Þykir mér vænt um kisann minn? Auðvitað. En eins og ég sagði þá finnst mér óeðlilegt að vera þetta leiður útaf kisa.
ok… Kettir eru fínir ég skil það vel enda á ég sjálfur eitt stykki. En að syrgja köttinn svona rosalega mikið er að mínu mati óeðlilegt nema að þú sért í 6. bekk eða minna. Ef kisinn minn myndi deyja eða þyrfti að verða svæfður yrði ég auðvitað leiður og myndi líða illa en það væri tímabundið ástand, þ.e.a.s. kannski 3 dagar. Fáðu þér bara nýjan kisa og haltu áfram að gera eitthvað skemmtilegt.
Það væri betra ef Woody Allen væri actually fyndinn. Skemmtir hann? Já. En fer maður virkilega að hlæja? Nei. Hann býr til frumlegar myndir sem maður getur horft á og liðið vel en ég sé bara ekki að hann standi undir titlinum “fyndnasti maður Hollywood”. Adam Sandler er ágætlega fyndinn en ég fæ það á tilfinninguna að þú bókstaflega hatir manninn…
Ég sé bara ekkert “feis”-legt við þetta og ef þér finnst eitthvað menntaðra eða betra að finnast Woody Allen fyndnari en Adam Sandler þá er það bara rugl.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..