Ég verð að koma áframfæri að ég fór og sá brain police á grand rokk í gær…núna á ég mér nýja uppáhalds hljómsveit! Ég hafði eitthvað heyrt af eldra efninu þeirra sem var mjög gott..en vá eftir að nýji söngvarinn ( að ég held nýi) tók við þá er Brain police að gera ótrúlegustu hluti..krafturinn í röddinni á honum er akkúrat það sem vantaði í bandið. Ótrúlega þétt sound frá hljómsveitinni og röddin á honum gera þetta að bestu rokkgrúbbu íslands í dag. Ég er kannski soldið æst eftir Tónleikana...