** Flugöryggisfundur ** Febrúarfundurinn í flugöryggismálum, sem jafnframt er fyrsti flugöryggisfundurinn á þessu ári, verður haldinn fimmtudaginn 28.febrúar. Fundurinn verður haldinn í Bíósal Hótel Loftleiða og hefst hann kl.20:00. Dagskrá: Unnur Ólafsdóttir veðurfræðingur ræðir flugveður og nýtt veðurtilkynningarkerfi á Íslandi. Arngrímur B. Jóhannsson ræðir hættur í listflugi. Kvikmyndasýning. Flugmálafélag Íslands Flugbjörgunarsveitirnar Öryggisnefnd FÍA Flugmálastjórn