Mig langar til að þakka stjórnenda síðunnar fyrir að sýna jerico þessa virðingu, það snerti okkur djúpt. Við ykkur öll vil ég segja. Takk fyrir elsku þið. Ég fer hingað inn oft á dag og renni yfir allar færslurnar af því að það gefur mér styrk. Ég sé líka að þarna á ég bandamenn sem mér þykir ólýsanlega vænt um. Hjálpið mér að hjálpa öðrum, að muna, að sýna hvert öðru umburðalyndi og skilning. Við erum ekki öll eins en við höfum öll sömu þarfirnar. Takk elskurnar mínar.