Hvað finnst fólk um þessa söfnun sem SkjárEinn var að setja í gang? Ég get eiginlega ekki gert upp við mig hvort þetta sé sniðugt eða tóm hræsni. Svona er textinn í auglýsingunni: VIÐ VITUM AÐ ÞAÐ ER AUMINGJALEGT AÐ BIÐJA ÁHORFENDUR UM PENINGA! Samt ætlum við í þetta eina skipti, áhorfandi góður, að leita til þín. Í dag hefjum við söfnun til þess að tryggja bjarta framtíð SKJÁSEINS. Það er hart í ári og við biðjum ekki um lítið. Við biðjum þig að styrkja okkur um 4.290 kr. eða andvirði...