Ég vildi óska að plötusnúður þyrfti bara að vera góður en ekki þekktur. Það er bara því miður ekki staðreyndin. Fyrir mörgummörgum árum síðan þegar ég kom fyrst að plötusnúðainnflutningi þurftu þeir bara að vera útlenskir og allt varð crazy. En það var allt annar heimur og annað fólk.
Sem betur fer er rave menningin ekki svona léleg og hallærisleg hér ;) Þetta eru alveg lamaðar myndir, eins og lélegt framhaldsskólapartý á selfossi… Guði sé lof fyrir íslenska skemmtistaði.
Það fer eftir því hvaða kreðsu maður er að tala um. Í “fersku” kreðsunni rúlar hann akkurat núna. Í trance/techno kreðsunni gerir hann það auðvitað ekki.
Kallinn var fínn. Mætingin kom á óvart, það er sjaldan sem hér hefur komið plötusnúður sem er eins heitur og hann er akkurat núna. Felix er án vafa allra heitasti snúður heimsins í dag. Ég veit ekki alveg hvernig á að meta ástæður þess að bara 350 - 400 manns komu. Ég nenni a.m.k. ekki að standa í þessu ef að það eina sem virkar eru breskir prog snúðar. Ef það er engin þróun og engar nýjungar þá getum við alveg eins öll farið að stilla á fm957 og hætt að spá í þessu.
og fyrst við erum á þessum nótum. Ekki gæti einhver verið svo góður og frætt mig hvernig síðast Pacha kvöld gekk? Ég einhvern veginn missti alveg af fréttum af því.
ójá! Þess veri sko óskandi að það væri hægt. Það er hægt að halda geðveikt kvöld og láta kosta mun minna inn. Af einhverjum ástæðum gengur það ekki í svona stóru húsnæði. Ég bind miklar vonir við að Flauel komi sterkur inn svo klúbbaplötusnúðar klakans geti sýnt hvað í þeim býr. Það er hálf leiðinlegt að hlusta bara á kaffihúsaplötusnúða til lengdar. Var ekki eitthvað tropic eitthvað um daginn með íslendingum? Ég held það hafi ekki gengið alveg eins og að var stefnt. Kemur kannski ekki á...
Sendu honum bara meil. Prísinn er 8-900þ.kall (fyrirfram) + 2 business klass flug, 5 stjörnu hótel og annað sem fylgir… Samtals svona 1.2m. meilið er: mauro@mauropicotto.com og síðan þegar einhver er búin að tapa duglega á einu svona transarakvöldi þá getum við talað um eitthvað annað.
ElektroLux samvinnuverkefni Hr. Örlygs (framleiðandi Iceland Airwaves), Grétars í Þrumunni og Agnars Tr. (áður m.a. Thomsen). Saman hafa þessir aðilar mjög mikil sambönd erlendis og mikla reynslu í að setja upp stóra atburði (eins og þessi kvöld hafa vonandi sýnt.)
Was!? Varstu á einhverjum öðrum tónleikum en ég? Þeir voru alveg geðveikir, aldrei verið betri! Mjög þétt og flott prógram, geðveik tónlist. Loksins eru þeir alvöru elektronískt band, ekkert fokking popp…
Hvað er verið að leita að vandræðum hérna! ;) Euro / commercial trance sökkar af þeirri einföldu ástæðu að hann er fyrirsjáanlegur og nánast alltaf eins. Það er samt til góð trance tónlist, yfirleitt kallað progressive house til að aðgreina það frá ruslinu… Ef einhver ætlar t.d. að halda því fram að belgíska pakkið í Lasgo geri góða tónlist þá bið ég hinn sama að endurskoða aðeins lífsskoðanir sínar. Sasha / Digweed og fleiri sem eru oft kenndir við trance eru það varla. Tónlistin sem þeir...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..