Ég er mjög næm á svona hluti, svo næm að mér líður illa yfir því, ég bæði sé og dreymi. Mér finnst rosalega óþægilegt að dreyma um hluti sem síðan gerast, sem dæmi get ég tekið WTC, mig dreymdi allt sem gerðist og var ég með fólkinu þegar það brann í flugvélunum, þetta er einn af mínum verstu draumum, einnig dreymdi mig flugslysið í Skerjafirði, en minn versti draumur er þegar ég dreymdi um banaslys vinkonu minnar, daginn eftir að mig dreymdi þann draum lést hún í bílslysi. Um leið og ég...