Lítil sorgleg jólasaga sem ég samdi fyrir Catastrophes(Cherish) Það snjóaði þungt og fótsporin hennar hurfu fljótt á tómum götum bæjarinns. Hún var búin að vera nokkra tíma á leiðinni, hún fór alltaf krókaleiðir heim. Því seinna sem hún kom heim því betra, mamma í algjöru jólastress trippi, ekki að nýji gaurinn og litla tíkin sem hann kallaði litlu elskuna sína, bættu mikið upp á stemminguna. Pabbi löngu stunginn af, “örugglega til bahamas eða eitthvað”, hugsaði hún með sér. “Góð hugmynd,...