Ég á tvö ofvirk börn þau eru 9 ára stelpa og 10 ára strákur, þau eru eins og svart og hvítt í sinni hegðun, ættla að segja smá frá hvoru þeirra og hvað hefur verið gert. Strákurinn var greindur 4 ára gamall, með athyglisbrest. misþroska og hreyfiofvirkni. Hann var svona þeytispjald, mjög fljótur að læra sumt en lengi að öðru, þegar hann var 7 ára var prófað lyfið Rítalin á hann en það virkaði ekki vel á hann, honum var gefið Amilin sem virkar mjög vel, hann sefur á næturnar og nær að halda...