Mér hafði alltaf fundist leiðinlegt að teikna, krotaði samt alltaf einhverskonar skrímsli sem ég á í þrem úrklippubókum. Skrifaði síðan texta fyrir ofan þá “vá hvað ég er ljótur” eða “ekki horfa á mig” (teikningarnar mínar höfðu lélegt sjálfstraust eða eitthvað hehe). Síðan, 12 ára, fór ég að vera hrifin af svona anime/manga teikningum og vildi að ég kynni að teikna almennilega svo ég ákvað að byrja á að teikna Harry Potter! Fyrsta alvarlega teikningin, á hana einhversstaðar ennþá held ég....