Ég held að ég, Nodferatu, garbage og ringfinger séum á sama máli varðandi þetta Opeth mál, reyndar hafa ég og Nodferatu séð þá úti live. Ég fór á Wacken seinasta sumar og eitt af þeim böndum sem drógu mig helst þangað var Opeth, enda vildi ég upplifa tónleika með þeim þar sem að saman voru komnir aðdáendur bandsins frá allri Evrópu og víðar. Á tónleikunum var ekki mikið um slam, flestir voru þarna til þess að horfa og lifa sig inní tónleikana og það var slammað inná millli þegar við átti....