“það er ekki rétt hjá þér að sá sem verði fyrstur að svara verði efst á listanum því hann fer alltaf neðst” þetta er ekki rétt hjá hross því þá færi allt í steik. Ætti þá að lesa grein eða kork og fletta svo alla leið niður og lesa álitin upp? Og hvernig er hægt að vera montinn af þessu? fyrsta svarið er núþegar efst og því er óþarfi að taka það fram.

Ég hef talað.
“Hvaða hálviti sem er gétur farið í útilegu í góðu veðri en það þarf skáta til að géta varið í útilegur í vondu veðri og samt haft gaman af”. Þetta er nú meira egóið sem þið skátarnir hafið. Ég hef nú ekki farið í margar útilegur en hef þó lent í vondu veðri en samt sem áður haft gaman að. Takk fyrir að koma mér til að hlægja samt.

Ég hef talað.
“Gráfinnur var strákur i hlíðaskóla hann var mjög duglegur i skolanum og fekk 10 í öllum fögum þangað til að hann byrjaði að spila ”Mad Hero Compani“ sem var einn vinsælasti tölvu leikur allra tíma Gráfinnur var háður leiknum og spilaði hann leikinn marga klukkutima a dag hann spilaði svo mikið að hann gat varla komist á klósettið einn daginn frosnaði gráfinnur hann frosnaði af því hann var buin að spila tölvu leikinn svo mikið hann var frosinn i 982 ár, hann var geymdur i stórri krukku a...
“Gráfinnur var strákur i hlíðaskóla hann var mjög duglegur i skolanum og fekk 10 í öllum fögum þangað til að hann byrjaði að spila ”Mad Hero Compani“ sem var einn vinsælasti tölvu leikur allra tíma Gráfinnur var háður leiknum og spilaði hann leikinn marga klukkutima a dag hann spilaði svo mikið að hann gat varla komist á klósettið einn daginn frosnaði gráfinnur hann frosnaði af því hann var buin að spila tölvu leikinn svo mikið hann var frosinn i 982 ár, hann var geymdur i stórri krukku a...
Duengions and Dragons er geðveik! Nema kannski fyrir utan söguþráðinn og sögusviðið og búningana og leikarana og handritið. Annars geðveik! P.S. Hvað varð um StéttJ korkinn? Ébaraébaraébara og svo horfinn!
Ég þakka hrósið, en hver sem er getur í rauninni verið snillingur samanborinn við svona “heiska” einstaklinga. Prófaðu bara, hann á ekki eftir að koma með neitt betra en: STFU, tík og annað í þeim dúr. Annars ætti ég kannski að skammast mín. Ég hef aldrei gert grín að fötluðum og kannski er þetta mín leið til að fá útrás.

Ég hef talað.
STFU = Shut the fuck up(fyrir hvað hélstu að T-ið stæði fyrir? A?) = Haltu kjafti. N00b = Newbie = byrjandi. Meira að segja þér tókst að klúðra þessu, þótt þú spilir CS. Enn og aftur hefurðu fengið mig til að hlæja með þessum svörum þínum. Það væri ekki slæmt ef það væri átlunin, en það er hún ekki. Ertu að reyna móðga mig með þessu? Þú ættir að vera farinn að vita að þessar misheppnuðu tilraunir til þess hafa engin áhrif á mig. En þú hinsvegar ert farinn að svara með meiri kjafti og þvælu...
“Sorp er áhugamál undir skrítnar/fyndnar/áhugaverðar fréttir, tengla og myndir sem ekki eiga sér flokk hér á huga.” Þó að áhugamálið heiti sorp áttu ekki að senda inn “ömurlegt steip bara rusl !” einsog þú orðaðir það. Ég hef ekkert á móti steipi svo lengi sem það er skemmtilegt einsog t.d. sögur einsog Róbert ljóti og margt fleira, en þessar stuttu, heimskulegu og ófyndnu sögur og annað slíkt sem birtist reglulega á korknum skemma bara ímynd þessa áhugamáls. Þó að þú hatir skólann ættirðu...
Ókei, þú ert ekki nörd. En nautheimskur ertu. “koddu úti skóla hittu mig og sjáðu kvort ég sé nörd”. Hvaða skóla? Og hvernig í fjandanum á ég að sjá hvort að þú sért nörd? Þú ert líklega að hugsa um þessa nörda “steríó típu”; gleraugu, köflótt skirta, buxur uppá mitti og annað slíkt, enda ræðurðu lílega ekki við neitt flóknara. Það er víst sama hvernig svör ég kem með, þú bara áttar þig ekki á samhenginu og kemur með fáránleg og óhugsuð svör. Kannski ætti ég að koma til móts við þig með...
Síðasta málsgreinin var greinilega of flókin fyrir þig. Ég hef greinilega móðgað þig sárlega án þess að gera mér grein fyrir því. Var það þetta með nördanna? Því að ég sagði aldrei neitt slæmt um Counter-Strike, en þú hefur víst túlkað það þannig vegna mikillar angistar og gremju útaf hinu fremur saklausa orði, nörd. Kannski varstu kallaður nörd af hinum krökkunum í skólanum. (Þ.e.a.s. ef þú hefur nokkurn tíman gengið í skóla, en það er ekki hægt að sjá á stafsetningunni þinni.) Þessar...
Svona, Svona. Andaðu rólega, inn og út, inn og út. Manstu hvað Dr. Jóhann sagði? Það er móðir þín sem vanrækti þig, ekki þetta fólk. Mundu það, Labbakútur. Já þú ert ekki feiminn lengur, er það nokkuð, labbakútur? Nei. Gott. *Eskimóakoss*
Ég, að rífa mig? Alls ekki. Ég var einungis að svara fyrir mig og varpa ljósi á staðreyndir, ólíkt þér sem hafðir aðeins þetta: “stfu hellvítis littla tík !”!!!!“ að segja. Það sem mér þykir undarlegt er að það þurfti aðeins eitt lítið ”komment“ um nörda og ófrumleika og þið farið strax í varnarstöðu og rífið kjaft. Þessi svör hafa staðfest þetta um ófrumleikann með t.d. ”stfu“ og ”n00b“. Ég vísa bara í greinina ”Sperm count" á Half-Life áhugamálinu og er ég hjartanlega sammála höfundinum....
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..