Ég lendi öðru hvoru í því þegar ég er sofandi að mér finnst ég vera vaknaður, en þó enn með augun lokuð, og ég vil opna augun og hreyfa mig en einfaldlega get það ekki! Svona eins og ég sé ekki í líkamanum. Dæmi: Ég sofnaði yfir miðjan dag fyrir stuttu, og allt í einu finnst mér ég heyra að útidyrahurðin sé opnuð og einhvern umgang. Mér fannst það skrítið því ég átti ekki von á neinum, en datt í hug að pabbi væri kominn (hann býr útá landi en er með lykil að íbúðinni). Ég vildi ekki að hann...