Íslenska kvennalandsliðið í golfi endaði í 33. sæti á heimsmeistaramóti áhugakylfinga í golfi sem lauk í dag í S-Afríku. Heimamenn fögnuðu sigri í keppninni á 10 höggum undir pari vallar samtals en Svíar, sem höfðu titil að verja, voru einnig á 10 höggum undir pari. Þetta er aðeins í annað sinn í sögu keppninnar sem að tvær þjóðir eru jafnar eftir 72 holur. Tvö bestu skorin á hverjum hring töldu í keppninni þar sem að þrír keppendur voru í hverju liði. Í tilfelli S-Afríku og Svía var skor...