Var að fá mér nýtt húðflúr eftir 10 ára pásu! Er með 6 stk núna. Fékk mitt fyrsta árið 1997. Fjölnir gerði það, það er einhvers konar mexico indjána “blóm” eða eitthvað á upphandleggnum. Svo fór ég hálfu ári síðar og fékk mér nafnið mitt á sanskrítletri utan um upphandlegginn hjá Sverri. Svo kom pása í ár. Þá fékk ég mér hjá Helga heitnum tattoo kínverska táknið “list” á framhandlegginn með töff skyggingum í kring. Hann gaf mér það tattoo blessaður. Svo lét ég einn sem ég þekki, í...