Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Hvað er að?

í Tilveran fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Takk :) Úps! Átti auðvitað að vera annað spurningamerki þarna! Var ekki að svara þessari spurningu sjálf :)

Re: Jeg.

í Tíska & útlit fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Ú, flott hár :D

Re: Hár

í Tíska & útlit fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Mér finnst toppurinn bara mjög flottur :)

Re: Hættur á huga

í Tilveran fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Æ, en leiðinlegt :( Og ég meina það. Ég hef séð margt eftir þig hérna á huga og ég hef mjög oft verið sammála þér. Og ef ég hef ekki verið sammála þér þá hef mér fundist þú vera með mjög góð rök og oftast haldið þessu á málefnalegu nótunum. Fólk þarf ekkert að vera óvinir þó þau séu ekki á sömu skoðun…margt fólk skilur þetta ekki. Ég hef líka fengið mjög margt neikvætt á mig þegar ég hef ekki verið sammála meirihlutanum….eða bara einhverjum. Versta komment sem ég hef fengið var þegar ég fékk...

Re: Fkn tíkin!!!

í Tilveran fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Neinei, þetta er ekkert stórmál, það er allveg satt og margt til verra en þetta. Ég er líka alltaf kurteis og brosandi þegar ég hef unnið við afrgreiðslustörf. Mér finnst hinsvegar allt of margt afgreiðslufólk vera mjög ókurteist. Ég hef líka ferðast slatta og ég sé rosalega mikin mun á afrgreiðslufólki þar og hér. Auðvitað eru einhverjir ókurteisir, það er alltaf. En mér finnst hlutfallið af ókurteisu starfsfólki mikið minna þar heldur en hér. Allavegana í þeim löndum sem ég hef farið til.

Re: Svínaflensan

í Tilveran fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Það sem ég var að meina er að það er fáranlegt að bera svínaflensuna saman við eyðni með því að segja: ,,Ég hef ekki enn smitast af eyðni svo afhverju ætti ég að vera hræddur við svínaflensuna?" Þar sem það er auðveldara að verjast gegn AIDS smiti heldur en að smitast af svínaflensunni.

Re: Swine Flu 5/6

í Tilveran fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Staðfest já, en það gætu verið mikið fleiri. Ég hef lesið í fréttunum að það hafi verið 100 staðfest tilfelli. Annars getum við ekki vitað hvernig þetta er í raun og veru þarna úti. Það eru alltaf að koma nýjar og nýjar tölur. Ég er alls ekki að bera svínaflensuna við Svarta dauða. Við skulum samt passa okkur á að fullyrða ekki að þetta gæti aldrei komið fyrir okkur. Ertu að tala um að heimurinn sé of þróaður til þetta gæti komið fyrir okkur eða bara Ísland? Ég er ekki eitthvað “ómægad...

Re: Fkn tíkin!!!

í Tilveran fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Þó að 95% unglinga láti svona í afgreiðslustorfum réttlætir þessi hegðun það ekki. Ef þú ferð til útlanda sérðu að þar er afgreiðslufólk oft mikið kurteisara við viðskiptavinina heldur en það er hér á Íslandi. Annars var málið ekki að hún rukkaði hann um 50 kall heldur hvernig viðmót hún var með í hans garð. Ég er viss um að honum hafi bara þótt ósanngjarnt hvernig hún lét við hann. (Nb: Hvernig hún lét, ekki endilega af því að hún tók 50 kall) Skil það allveg..

Re: Eurovision 2009 dómar við fyrstu hlustun

í Söngvakeppnir fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Flott grein hjá þér :D Ætla koma með langt svar og segja hvort ég sé sammála þér eða ekki :P Albania: Sammála þér, allaveg ágætislag en ekkert framúskarandi né eitthvað sem fólk tekur eftir. Ég held þetta lag verði bara allt of óáberandi og renni saman við hin lögin. Fer samt mikið eftir því hvað þau gera á sviðinu. Andorra: Er allveg sammála þér með þetta lag. Það er eitthvað skemmtilegt við það en það sumir hlutar eru bara hundleiðinlegir. Samt sem áður ágætt en myndi samt gefa því aðeins...

Re: ESC 2008 Scoreboard Slmulator

í Söngvakeppnir fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Svona kom þetta út hjá mér ef ég stilti þetta eftir veðbönkunum. Ætla að gera þetta aftur einhverntíman eftir því hvað mér finnst um lögin :) Ekki séns samt að Ísland fái svona mikið :( Var alltaf að hugsa, jájá, eins og við mundum fá svona mikil stig fá þessari þjóð. En reyndar, veit maður aldrei :) 1. Norway (291) 2. Azerbaijan (218) 3. Iceland (185) 4. Sweden (176) 5. Turkey (157) 6. Greece (155) 7. Switzerland (137) 8. Lithuania (132) 9. Finland (113) 10. Spain (103) 11. Denmark (101)...

Re: Nýr trailer

í Harry Potter fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Æi, af því það er komið nýtt myndband núna í myndbandakubbin get ég þá ekki séð trailerinn? :(

Re: Draco og Snape

í Harry Potter fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Töff :)

Re: Why So...

í Harry Potter fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Hahahah :D

Re: Útlit og tíska í mínum augum^^

í Tíska & útlit fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Hahhaha, ég las þetta sem: ,,Ég las óvart allan þráðinn“ Svo þegar ég leit á þetta aftur og sá að það stóð bara ,,Ég óvart allan þráðinn” brá mér geðveikt :D

Re: Eruði öll gerð úr leggöngum?

í Tilveran fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Ööhh…nei?

Re: Eruði öll gerð úr leggöngum?

í Tilveran fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Ekki reeeeeeeyna að láta eins og ég skilji þig og sé sammála þér.

Re: Eruði öll gerð úr leggöngum?

í Tilveran fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Eeeeewww….

Re: Eruði öll gerð úr leggöngum?

í Tilveran fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Haha, aldrei :) Enda er ég ekki sammála því :) Mig minnir samt að þú hafir sagt einhverntíman að Harry Potter væri bara fyrir 14 ára stelpur. Bara búinn að lækka aldurinn?

Re: Fkn tíkin!!!

í Tilveran fyrir 15 árum, 7 mánuðum
:)

Re: Frönsk síða- Hjálp

í Tilveran fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Þetta er reyndar ekki síðan sem ég var að leita að. Ég mundi allt í einu hvað slóðin hét svo þetta er komið! Takk samt :D

Re: Hjartadrottning.

í Myndlist fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Vá! Þetta er ekkert smá flott! :)

Re: Breytingar

í Tíska & útlit fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Lang flottust ‘04 og ’07. Er ekki að fýla hitt :P

Re: Swine Flu 5/6

í Tilveran fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Ok, ég sá samt í fréttunum að það væru staðfest um 100 dauðsföll að völdum fuglaflensunar. Ein auðvitað veit maður aldrei, ég held að yfirvöld í Mexico séu að standa sig mjög illa. Svo við vitum í rauninni ekki hversu margir hafa dáið. Það gæti allveg eins verið mikið fleiri dauðsföll en þau vilja kanski ekki hafa hátt um það…

Re: Swine Flu 5/6

í Tilveran fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Neibb, alls ekki. Það hafa um 100 manns dáið í Mexico út af þessari flensu. Ég trúi ekki að þú sért að bera þetta saman við venjulega flensu..þessi er mikið skæðari. Að einhverjum ástæðum samt bara í Mexico og við skulum vona að það haldist þannig. (og lagist auðvitað í Mexico líka)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok