Ég er ekkert að grenja frekar en þú. Já..ég geri mér grein fyrir því að samskipti hér á netinu eru allt öðruvísi en face to face. En það sem ég var að meina er, að það er raunverulegt fólk bakvið tölvuskjáina, raunverulegt fólk með tilfinningar. Ég hef orðið vör við það að sumir hérna hafa sagt: ,,Þetta er netið! Þú átt ekki að taka þessu alvarlega! Þetta er ekki í alvöru!“ og eitthvað í þá áttina. Málið er það að það er enginn munur á því að segja: ,,Þú ert ljót” á netinu og í alvörunni....