Þetta er alls ekki óeðlilegt. Einn og hálfur mánuður er ekki mikið. Það tekur tíma að jafna sig á svona. En mundu eitt, þó þér líði eins og þú munir aldrei jafna þig þá munntu gera það. Þetta er ekki spurning um hvort þú munir jafna þig..heldur er þetta bara spurning um tíma. Það er líka mjög eðlilegt að þú hugsir um hann þrátt fyrir að þú reynir að gera það ekki. Ef maður reynir að hugsa ekki um eitthvað þá gerist einmitt hið gagnstæða, maður fer að hugsa um það. Þessvegna skaltu leyfa þér...