Grabbarna Grus köllum við venjulegast litla 5 manna gengið okkar hér í Svíþjóð! Við kynntumst allir þegar við byrjuðum í sama bekk í menntaskólanum! Við byrjuðum að djamma saman og þetta endaði með því að við fórum í ferð til Ungverjalands í Júlí! Fyrir ferðina bjóst ég við skemmtilegri fyllerísferð þar sem við mundum drepa lungun okkar og ekki mikið annað! Ég bjóst ekki alveg við sumum extra hlutum sem að mundu gerast! Við leigðum hús með 3 svefnherbergjum (5 rúm), eldhúsi, baðherbergi,...