Ég fór um daginn í Hljómalind, og keypti mér nýju plötuna hennar Beth Gibbons, söngkonunar úr Portishead. Ég hafði nákvæmlega enga hugmynd um hverskonar tónlist þetta væri, en þar sem Portishead er svo mikið snilldar band gat ég ekki látið þetta fram hjá mér fara. Eftir að hafa hlustað á þessa plötu erég alveg á því að Beth Gibbons sé besta söngkona sem uppi hefur verið. Platan heitir Out of season og er fyrsta sólo plata Beth. Samstarfsaðili Beth kallar sig Rustin Man, en heitir í raun Paul...