Ég fór fyrir löngu með mína 266mhz vél í viðgerð hjá Tæknival. Mér tókst að steikja power supplyinn. Viðgerðin átti að taka nokkra daga, og ég algjörlega háður tölvum hringdi þarna á hverjum degi liggur við og spurðist fyrir um hvernig þetta gengi. Í meira en mánuð sögðu þau að það væri verið að fara gera við hana. Svo einn daginn, mánuð seinna eða meira, sagði kellan að það væri búið að gera við hana. Hmm skrítið, ég sem hringdi í gær… En jæja, ég kem og sæki tölvuna og þá láta þeir mig fá...