Þetta er samt rétt hjá Kidlingi, ofbeldisglæpir vs. skjalafölsun, skattsvik, frádrátt etc. finnst mér að fái ekki nógu háa dóma. Það var mér efni til þónokkurar gremju að lesa um dómana yfir þessum mönnum, þótt þeir hafi ekki haft vilja til að drepa drenginn hafa þeir látið í ljós með gjörðum sínum að þeir hafa mjög svo hömlulaust skap, litla stjórn yfir gjörðum sínum og brenglaða siðferðiskennd og því hættulegir umhverfinu. Það má ætla að sérhver venjulegur maður myndi ekki sparka í...