Mér, sem mun meiri aðdáandi bókanna heldur en myndanna, fannst þessi mynd bara frábær í næstum alla staði. Leikararnir komu mér gífurlega á óvart, þrátt fyrir að sumar persónur voru alltof lítið á skjánum þá var það bætt upp með frábærum leik. Tonks leit vel út fannst mér, þrátt fyrir að segja varla heila setningu í myndinni, Bellatrix var fullkomin, ég hataði Umbridge meira heldur en í bókunum (frábær frammistaða!) og Luna var yndisleg í sínu hlutverki. Daniel sjálfur hefur bætt sig alveg...