ég tók þessa á sessioninu 20 maí í öskjuhlíð af bjögga að gera svona plant á wallrideið, veit ekki hvað það kallast nákvæmlega og myndin er smá unnin í photoshop en það var unsharp mask og crop… tekin á olympus µ-mini digital
Ég tók þessa af steina að taka trickið flying cyclist..neii segi svona hann missti hjólið víst eitthvað í loftinu sýnist mér og beyglaði meðal annars skrúfu í droppátið..tekin í öskjuhlíð á sessioninu 20.maí á litla sæta olympus µ-mini digital
Ég tók þessa af steina að gera cancan á sessioninu 20. maí í nauthólsvík á litla sæta olympus µ-mini digital og já myndin er aðeins breytt í photoshop eins og glöggir taka eftir…gerði allt svarthvítt nema steina
já þetta er Sindri held ég að hann heiti að gera heelclicker eða healclicker eða hvernig sem þar er skrifað á sumardaginn fyrsta í öskjuhlíðinni. Komnir frekar fínir pallar þarna finnst mér og allt að gerast bara, held sjálfur að þetta verði besta hjólasumar hingað til.
tók þessa 15.apríl 2005 á æfingu hjá landhelgisgæslunni. Fékk að fara út á bátnum sem allir sjómennirnir (þeir sem eru í sjómannaskólanum) fara út á. Fyrir þá sem ekki vita þá eru alltaf æfingar á föstudögum beint fyrir utan sæbrautina :)
Ég tók þessa mynd, á canon d30 með 28-77 linsu, haukur að stökkva í öskjuhlíðinni að gera nofooter, fiktaði aðeins í color balance í photoshop annars alveg original
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..