Ég mun hér með feta í fótspor leidrettarans og leiðrétta fólk. Hinsvegar mun ég ekki reyna að vera með tröllaskap, leiðindi og skjóta mig í fótinn oftar en einu sinni og oftar en tvisvar heldur frekar benda aðilanum á villuna, auk þess mun ég taka lítið mark á styttingum,innsláttarvillum og slangri. Ég mun aðallega einbeita mér að n/nn villum, ng villum og y/i villum. Ég kann ekki fingrasetningu svo að ég gæti gert innsláttarvillur. Með þessu er ég að reyna að stuðla að betri stafsetningu...