Ég biðst afsökunar ef þér finnst ég hafa verið dónaleg, það var ekki ætlunin, en ég viðurkenni það fúslega að ég var frekar æst þegar ég skrifaði þetta þar sem þessi fullyrðing þín rifjaði upp fyrir mér gamla frústrasjón. Ég ætlaði ekki að setja mig á háan hest eða vera hrokafull eins og þú gefur í skyn að ég hafi verið en ég stend samt við það að mér finnst það sorglegt að fólki skuli detta í hug að þessi vitleysa hafi verið samþykkt. Með því er ég ekki að segja að mér finnist þú sorgleg...