Góða kvöldið líkamsræktarunndendur. Hefur einhver reynslu af fæðubótarefninu Leukic? Ef svo er, megiði endilega deila reynslu ykkar hér, svosem árangri and such. Ef einhver veit ekki hvað Leukic er, klikkiði þá hérna.
Þar sem þetta er virkara áhugamál heldur en /greajur þá var ég að velta einu fyrir mér. Hvernig á maður að “performa” system update á PS3 vélinni sinni? Það stendur að maður eigi bara að fara í “Settings” og velja svo “System Update”. En það er ekkert “System update”, undir “Settings” valmyndinni. Hjálp. Bætt við 17. mars 2008 - 19:48 Djók, ég fann þetta.
Gefinn er fleygboginn Y = -2x^2 + 5x + 3 Sýnið með útreikningum hvort punkturinn P = (3,-2) er á fleygboganum. Seinasti liðurinn í dæminu, og ég hef ekki hugmynd hvaða jöfnu ég á að nota til að finna svarið. Hjálp? :)
Nú eru öðruvísi dagar í Iðnskólanum. Er einhver hér á huga í Iðnskólanum sem getur sagt mér það, hvort maður fái fjarvistir fyrir að mæta ekki á þetta?
Er einhver hérna sem hefur prufað fjarþjálfuna sem Egill Einarsson e. Gillz, er að bjóða uppá? Eða þekkir kannski til einhvers sem talar af einhverri reynslu? Vitiði hvað þetta kostar, and so on?
Kærastan mín er að fara taka verklega núna á þriðjudaginn, og þarf því að æfa sig fyrir munnlega prófið. Hvernig er það, þegar ég tók munnlega prófið fengum við blað með 10 spurningum og gátum því lært þau utan að, og svo þegar komið var að munnlega prófinu drógum við bara spjald. Eru ekki allir ökukennarar með svona plan, þ.e. dreifa út spurningalista, því hún virðist ekki vera viss.
Ég var að velta þvi fyrir mér hvort hægt væri að kaupa sjampó sem að minnkar liði í hári, eða s.s. sléttir það? Ef svo er, hvar get ég keypt svoleiðis?
Zirh er það heitasta í dag. Húðin á mér hefur aldrei litið betur út. http://www.zirh.com/product.aspx?f=10 Ég mæli með þessu fyrir fólk sem á basli við bólur og leiðinlega fílapensla og þaðan eftir götunum. :)
Hefur einhver sniðugur hugari gengið í raðir Nova, sem er víst stærsti skemmtistaður í heimi? Ef svo er, hvernig eruði að meta þjónustuna og allt það? Nova er btw, símafyrirtæki
Góðan dag, og næstum því gleðilegt nýtt ár. Félagi minn var að splæsa í Mvix flakkara og því miður er vandamál á höndum okkar. Málið er semsagt að skrárnar sem að eru inná flakkaranum, eru ekki sjáanlegar þegar flakkarinn er tengdur við sjónvarpið. Það birtist efnisyfirlit og allt það, en það er ekkert í efnisyfirlitinu. Einhver sem hefur reynslu af Mvix, endilega svarið :)
Ég er að skipta um skóla á miðri önn, og ég valdi Borgó sem aðallskóla, og valdi svo Fjölbrautaskólann við Ármúla sem varaskóla. Ég áttaði mig ekki alveg á því að Borgó væri með svona bekkjarkerfi system, og er eiginlega ekkert heitur fyrir því. Hvernig virkar bekkjarkerfið? Þarf ég þá að fara í áfanga aftur sem ég er búinn að taka? Endilega útskýrið eftir bestu getu! Bætt við 7. desember 2007 - 16:12 Vóó, ekki á miðri önn. Meina milli haust og vorönn. Sorry :)
Jææja, get ég einhversstaðar lækkað hitan á tölvunni. Það liggur við að tölvan sé að bráðna. Örgjörvin er kannski í 6% usage, en tölvan hagar sér eins og sé að reyna að framkvæma eitthverjar kjarnorkuárásir. Hvað er að frétta?!?
Hvernig losnar maður við hálsbólgu ;( Ég hef ekki fengið hálsbólgu síðan ég var svona 5 ára, en í þessum kulda komst ég bara ekki frá því að næla mér í eina. Kv, Splifftastic
Gætuði gefið mér upp númer hjá húðsjúkdómalækni sem ykkur reyndist vel. Ég bara verð að fara í bólumeðferð, mælirinn var að fyllast. Og hvað kostar tíminn hjá honum?
Vitið um einhver krem sem fá ummerkin eftir bólur til að hverfa. Ef ég fæ t.d. bólu, þá er eins og að hún fari aldrei fullkomlega, alltaf eitthvað smá ummerki eftir hana og það PIRRAR mig! Eins og nú er ég bólulaus, en ummerkin eru allsstaðar, and that makes me a sad little panda :/
Jæja, þá er ég fluttur úr sveitabænum og inní menninguna, og hvorki meira né minna en í 101 baby! Vitiði um einhverjar hárgreiðslustofur í grenndinni? Kv, Splifftastic
Var að spá í að kaupa mér Volkswagen Boru. Árgerð 2000 og keyrð 102 þúsund. Er einhver af ykkur búinn að lenda í vandræðum með þennan bíl, eða félagar ykkar að kvarta yfir honum? Og er mikil bilanatíðni á þessu kvikindi? Kveðja, Splifftastic Bætt við 16. ágúst 2007 - 23:53 ** [...] í að kaupa mér Volkswagen BORA. P.S: Bannað að gera grín af nafninu á bílnum! :)
Góðan dag. Titillinn segir þetta kannski allt, en hvað þarf maður að vera að spá í þegar menn ætla að kaupa sér bíl? Hvað hann er ekinn? Tímareim? Eitthvað fleira? Og segjum sem svo að ég myndi kaupa mér bíl fyrir svona 800.000, hvaða gjöld væri ég að greiða eftir að ég væri búinn að fá bílinn, og hvað kosta þau? Skráningargjald og þvíumlíkt? Bestu kveðjur, Splifftastic
Vitiði hvaða lagið heitir sem er einhvern veginn svona “Fokk þú, og þitt crú, þrjú x. þrjú x, þrjú x”. Það er semsagt ekki lagið “XXX” sem Erpur rappar, heldur eitthvað annað, mun rólegra? Með þjóðhátíðarkveðju, Splifftastic
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..