Ég tek það fram að ég á það sjálfur til að stafsetja vitlaust og nota orð asnalega! En að lesa póstana hérna á Huga er hreinn viðbjóður! Önnur eins smákrakka-skrif, hálfvitatilsvör og nauðgun á tungumálinu á sér enga hliðstæðu í heiminum! Meðferðin á íslenskunni er þó misslæm, og greinilegt að krakkar í dag eru gjörsamlega ófærir um að hripa niður fáein orð án þess að limlesta og kvelja móðurmálið ófyrirgefanlega, á meðan póstar á sumum sviðum Huga eru ljómandi vel skrifaðir, en þar tel ég...