Gunnar heiti ég og er geit og bý í Geitabæ með fjölskyldu minni. Konan mín heitir Gunna og er líka geit, við eigum tvo syni og eina dóttur,en þau eru að hálfum hluta geit og hálfum hluta broddgöltur. Ég held að það sé annaðhvort af því að langömmu bróðir minn var einn sextándi hluti broddgöltur eða þá að ég er ekki faðirinn. Ég hallast að fyrri skýringuni því sú seinni er svo fjarstæðukennd. Þau heita Gunnar yngri, Gunna og Gunnar yngri yngri (við geitur erum ekki mjög frumlegar). Besti...