ég varð að senda þetta ljóð inn algjör klassík og eitt af uppáhalds ljóðunum mínum. Ég finn það gegnum svefninn, að einhver læðist inn með eldhúslampann sinn, og veit, að það er konan, sem kyndir ofninn minn, sem út með ösku fer og eld að spónum ber og yljar upp hjá mér, læðist út úr stofunni og lokar á eftir sér. Ég veit að hún á sorgir, en segir aldrei neitt, þó sé hún dauða þreytt, hendur hennar sótugar og hárið illa greitt. Hún fer að engu óð er öllum mönnum góð og vinnur verk sín hljóð...