Sæll, var að fara yfir þetta skemmtilega háratog okkar hér í fyrra. Ég stend við öll mín orð, en ég er ekki að reyna að stofna til vandræða. Ég virði þig, það má segja margt um þig en þú stendur nú oftast fyrir þínu og það er virðingarvert. En ástæðan fyrir að ég gróf þetta gamla orðaskak okkar upp var að ég las viðtalið eftir þig á esports síðunni. Það var fínt. En þú tókst ekkert sem ég sagði hér að ofan til greina, mér fannst það bara fúlt og kannski er ég fúll að vera að hafa orð á því...