Ég skildi ekki almennilega textann í laginu á FM 957 sem vakti mig þennan morgun, ætli hann hafi ekki verið um ást. Ég slökkti nú bara strax á þessu rusli og kveikti á Guns & Roses til að vekja mig almennilega, ég var ekki að nenna í skólann, það var rigning úti og tuttugu mínutur í strætó. Synd, ég slökkvti á “Don't Cry” og fór aftur að sofa. Klukkan var tólf þegar ég opnaði augun aftur, fór bara á fætur. Skipti minnstu, gat legið og sofið eða legið og horft á sjónvarpið. Ákvað að horfa á...