Upphafið Eftir að hafa gengið herfilega með Tottenham á Englandi ákvað ég að fara eitthvað annað. Þá valdi ég Spán framyfir Ítalíu. Ég tók við Athlético de Madrid. Stjórnin bað ekki um mikið, bara að vera um miðja töfluna. Þeir báðu ekki einu sinni um Evrópusæti en það gerðu hins vegar aðdáendur liðsins, enda eru þeir oftar en ekki með háleitari markmið heldur en þessar blessuðu stjórnir. Leikmannahópurinn Torres, Kezman og Petrov voru þeir einu sem ég kannaðist við í leikmannahópnum. Þar að...