Ég verð að viðurkenna að ég kem ekki oft inn á Huga, en geri það stundum því mér finnst einstaklega gaman að láta í ljósi skoðanir mínar á öllum mögulegum hlutum … En eitt er það þó sem fer alveg svakalega í pirritaugarnar mínar, það er þegar fólk er að setja út á eitthvað sem aðrir hafa skrifað, td stafsetningarvillur: Fólk, ef þið getið ekki lesið útúr vitlausri stafsetningu, látið það þá bara vera að vera að lesa yfir höfuð ! Í alvöru, krakkar sem eru að skrifa um skelfilegar lífsreynslur...