Ég er nýbúinn að ná að eyðileggja ipod nanoinn minn (2nd gen) með reiði+drykkjarjógurti og ætla nú að fá mér nýjan ipod, þessi orðinn alveg 1 og hálfsárs gamall og mér finnst það fín ending miðað við önnur raftæki sem ég á. Nú er bara spurninginn, á ég að fá mér ipod touch 8/16/32gb, ipod classic 80gb eða ipod nano (3rd gen). Getur einhver komið með þráð eða bara svar þar sem hann ber saman þessa 3 ipoda fyrir mig, gb í touch skipta ekki máli og verð ekki heldur, fæ þetta mjög ódýrt...