Sæl öllsömul, ég er með skrifræpu þessa dagana og eftir að hafa farið inn á korkanna hér á huga tók ég eftir því hve dónaskapurinn og ókurteisin er farin að ráða ríkjum þar, eins og komið hefur fyrir hér svo sem líka. Ég gróf því upp gamalt blogg sem ég skrifaði um sama málefni þegar ég var alltaf inni á barnalandi: Ég var inni á barnaland.is og las þar bréf sem ung stúlka setti inn um vandræði sín í íslenska styrktarkerfinu. Því var svarað af konu sem bauð henni að taka við barninu hennar...