En það virkar samt alveg að drekka eitthvað með sykri í og taka inn kreó í leiðinni, bara vesen að vera að kaupa eitthvað sem kostar pening til þess að taka kreatin í mánuð eða svo…
En eru einhver verlaun eða eitthvað álíka? Mig langar alveg að mæta en þegar ég tek beygju þá er ég ekki í skóm eða í vesti eða neitt, bara með smá belti og ekkert annað :P
Hahahahaha, svo satt, maður sá alveg á honum að hann fékk ekki að útskýra almennilega og svona. En vá hvað það var pirrandi hvað Auddi var mikil kelling og “tappaði” strax þegar hann og Sveppi fóru báðir í Gunnar.
Góður þáttur, en mér fannst þeir eitthvað vera svo mikið að gera grín af Gunnari og leyfðu honum aldrei að tala eða útskýra almennilega eitthvað…þeir eru bara svona :S
Ég er líka með svona nema bara með hægri öxlina, var hjá lækni og ákvað að spyrja hann útí þetta og hann sagði mér að þetta væru beinin að nuddast saman og að það væri ekki hollt að leika sér að braka í þessu… :S
Segjum sem svo að Fedor fari þangað, keppi við Mir og Lesnar og vinni þá báða, þá er hann búinn að vinna allt og “niðurlægja” UFC, persónulega finnst mér betra að Fedor fari ekki í UFC…bara mín skoðun
afhverju segiru að ég geti litið kvartað, er bara að segja að hann spoili og miklu i þessari grein. Kannski í lagi að segja frá því að hann drepi fólk og svoleiðis en ekki akkúrat hverja hann drepur, hefði alveg mátt setja *spoiler* bakvið nafnið á greininni eða eitthvað…
En ég hef ekki séð þessa mynd og þú sagðir eiginlega allt frá henni nema endann, hefðir kannski mátt sleppa því að segja að hann hringdi í lögfræðinginn sinn og að hann hafi reynt að éta heila og eitthvað…ég veit að ég hefði alveg getað sleppt því að lesa þessa grein en yfirleitt er ekki sagt svona mikið frá í gagnrýni…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..