Ég keypti klassískan 3/4 gítar af gerðinni Santos Martinez fyrir unga dóttur mína í London nýlega. Þetta á að vera þokkalega vandaður barnagítar, gegnheill viður í toppi og kostaði um 70 pund sem er tvöfalt dýrara en ódýrustu gítarar í þessari stærð. Hann er mjög réttur innbyrðis sem er víst oft vandamál með smærri gítara og hljómurinn er fagur. Málið er að mér finnst hann halda stillingu illa. Hann var fyrst stilltur á aðfangadagskvöld og á nokkra daga fresti er ég að strekkja hann upp um...