Ég vakna. Ömurlegur dagur framundan, alveg eins og í gær, og daginn fyrir það, og daginn fyrir það, og svo framvegis. Ég stíg fram í eldhús, konan býður mér ekki einu sinni góðan daginn, ég sest niður og bý mig undir að fá mér að borða, en þennan dag fékk ég skilnaðarpappíra í staðinn fyrir rúsínur með serjosinu mínu. Ég fer aftur inn í herbergi og klæði mig í rándýru, gráu Boss jakkafötin mín og lít aðeins á mig í speglinum, ég lít hræðilega út. Ég stíg út í kuldann og reyni að drífa mig að...