Ok.. varðandi gærkvöldið.. Seaman var fínn, en Gus Gus skemmdi alveg kvöldið fyrir mér! Við mættum þarna ca. 1:30 og þá var einhver ömurleg tónlist í gangi sem lagaðist svo heilmikið, en svo tók Gus Gus við og þvílík leiðindi! einnig passaði þetta bara engan veginn við Seaman, allt öðruvísi tónlist! Svo þegar hann loksins byrjaði entist maður svo stutt þar sem þetta var orðið svo seint. Sem sagt, bú á Gus Gus frá mér! :P