Ég var nú bara að klára tveggja eða þriggja tíma svefn. Það var ansi gott en argasta leti engu að síður. Nú kemst ég ekki inn á Msn, örlögin eru sennilega að segja mér að læra. Ég ætla þess vegna að koma mér fram í stofu á næstunni og læra þetta, bara prenta út glósurnar hérna fyrst.