Hvað er í gangi! Er ég sá eini sem fannst þetta frekar erfitt próf. Ég er reyndar freeekar lélegur í dönsku en mér fannst þetta samt erfiðara en miðað við þau próf sem ég hef verið að æfa mig á. Svona fannst mér prófið… Hlustun - Fyrri hlustunin var erfið, aðallega útaf því að maður fékk engin hlé til að svara spurningunum. Seinni var hinsvegar frekar létt, skýrt lesið og maður náði að halda sér í henni. Skilningur á rituðu máli - Þetta byrjaði mjög létt með stuttu textunum, náði þeim alveg....