Íslensku unglingalandsliðin áttu nokkuð góðan dag gegn Dönum í dag. Þrjú lið unnu góða sigra á frændum okkar, U-16kv, U-16ka og U-18ka. Stúlkurnar í U-18kv töpuðu hins vegar sínum leik. U-16kv Stúlkurnar rúlluðu yfir stöllur sínar, 91-45 í leik sem var aldrei spennandi. Allar stelpurnar spiluðu og skoruðu, minnst 13 mínútur og mest 20 mínútur. Helena Sverrisdóttir skoraði mest, 29 stig (8 fráköst, 4 stoðsendingar, 2 stolnir), Ingibjörg Vilbergsdóttir 9 stig og María Ben Erlingsdóttir 9 stig,...